Magni Fannberg ráðinn til Svíþjóðarmeistarana
Magni Fannberg hefur fært sig um set og er tekinn við sem þróunarstjóri hjá sænsku meisturunum í AIK í Stokkhólmi en hann hefur gegnt sama starfi hjá Brann í Noregi frá 2016.
Magni sem hefur í starfinu yfirumsjón með þróun yngri leikmanna AIK í karlaflokki á fjölbreyttan hátt.
Honum vegnaði vel í uppbygginarstarfi hjá Brann og fékk mikið lof í norskum fjölmiðlum.
Magni sem hefur í starfinu yfirumsjón með þróun yngri leikmanna AIK í karlaflokki á fjölbreyttan hátt.
Honum vegnaði vel í uppbygginarstarfi hjá Brann og fékk mikið lof í norskum fjölmiðlum.
„Fjölskylda mín býr í Stokkhólmi og þá er AIK stórt og spennandi félag. Þegar þeir sóttust eftir kröftum mínum var það of freistandi til að segja nei," segir Magni sem tekur við nýja starfinu 1. júlí.
Magni er 39 ára en hann þjálfaði á sínum tíma meistaraflokk Fjarðabyggðar. Hann var einnig aðstoðarþjálfari meistaraflokks Grindavíkur auk þess sem hann þjálfaði yngri flokka á Ísafirði og hjá HK og Val.


