Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 30. mars 2019 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Javi Gracia: Við réðum ferðinni
Mynd: Getty Images
Manchester United vann í dag 2-1 sigur á Watford á Old Trafford. Marcus Rashford og Anthony Martial gerðu mörk heimamanna og Abdoulaye Doucoure skoraði mark Watford þegar skammt var til leiksloka.

Javi Gracia, stjóri Watford, var ánægður með sína menn í viðtali eftir leik en pirraður á færanýtingunni.

„Mér fannst þetta vera góð frammistaða en slæm úrslit. Við nýttum ekki færin okkar sem við sköpuðum í fyrri hálfleik. Við réðum ferðinni, vorum meira með boltann og sköpuðum fleiri færi. Við skoruðum ekki og okkur var refsað fyrir það," sagði Gracia.

„Við höfum verið að ná í góð úrslit á útivelli en í dag var undantekning á því. Við verðum að bæta okkur fyrir næstu leiki."

„Ég er pínu pirraður. Þetta var góð frammistaða en við nýttum ekki færi okkar í upphafi leiks."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner