Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 31. mars 2019 18:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Salah: Ég er víst að eiga slæmt tímabil
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah vill meina að sigurmark Liverpool gegn Tottenham hafi verið sitt mark.

Stuðningsmennirnir gáfu mér markið," sagði Salah léttur. „Mark er mark."

Toby Alderweireld fær markið skráð á sig sem sjálfsmark enda fór boltinn af honum og inn.

Liverpool leikinn 2-1, mjög dramatískt. Liðið er komið aftur á toppinn með tveimur stigum meira en Manchester City, sem á þó leik til góða.

„Það sem er mikilvægast er sigurinn. Ég hef ekki skorað í nokkrum leikjum, en það eru sumir leikmenn sem hafa skorað sama fjölda af mörkum og ég, og eru að eiga sitt besta tímabil á ferlinum. Ég er víst að eiga slæmt tímabil!"

„Þú þarft ekki alltaf að spila vel. Mikilvægast er að fá þrjú stig. Stærstu liðin finna alltaf leiðir til að fá þrjú stig."

„Núna tökum við þetta leik fyrir leik."
Athugasemdir
banner