Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 03. apríl 2019 21:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pochettino: Tileinka Daniel Levy þennan sigur
Pochettino með teymi sínu.
Pochettino með teymi sínu.
Mynd: Getty Images
„Þetta er sérstakt augnablik, sérstakt kvöld," sagði Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, eftir 2-0 sigur á Crystal Palace í kvöld.

Tottenham spilaði í fyrsta sinn á nýjum heimavelli sínum.

Sjá einnig:
Myndaveisla: Tottenham er loksins komið heim

„Ég finn það á mér og ég trúi því að þetta er besti leikvangur í heimi."

„Við vissum að þessi leikur yrði erfiður. Ég er ánægður fyrir hönd Daniel Levy (stjórnarformanns Tottenham). Ég tileinka honum þennan sigur."

„Tilfinningin var stórkostleg frá byrjun. Það var svo mikilvægt fyrir okkur að vinna. Núna þurfum við að fara að lyfta titlum. Núna byrjum við nýjan kafla."
Athugasemdir
banner
banner