Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 06. apríl 2019 21:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Milivojevic skorað úr tíu vítaspyrnum á leiktíðinni - „Ekki auðvelt"
Mynd: Getty Images
Serbinn Luka Milivojevic skoraði í dag enn eitt markið úr vítaspyrnu. Þetta var hans tíunda mark úr vítaspyrnu á þessari leiktíð en einungis Andy Johnson hefur skorað fleiri af punktinum á einni leiktíð.

Johnson skoraði úr ellefu vítaspyrnum tímabilið 2004-05 þegar hann lék einmitt með Crystal Palace.

76 mörk hafa verið skoruð úr vítaspyrnum og Luka hefur skorað úr 13% þeirra (10/76).

Milivojevic var spurður út í leikinn og vítaspyrnurnar eftir leik í dag.

„Þessi þrjú stig staðfesta veru okkar í deildinni," sagði Milivojevic.

„Við spiluðum vel heilt yfir í dag. Við stýrðum leiknum í seinni hálfleik. Á þessari leiktíð hef ég skorað úr helling af vítaspyrnum sem er ekki auðvelt en það má ekki gleyma því að við erum með leikmenn sem eru með mikil gæði og geta sótt þessar spyrnur."
Athugasemdir
banner
banner
banner