Rafa Benitez knattspyrnustjóri Newcastle stýrði liðinu til sigurs í dag þegar Southampton kom í heimsókn, niðurstaðan var 3-1 sigur.
Samningur Benitez við Newcastle rennur út í sumar, viðræður um framlengingu á samningi hans standa nú yfir, leikmenn Newcastle vilja hafa Benitez áfram.
„Við byrjuðum fyrri hálfleikinn ekkert sérstaklega vel en náðum að skora mörk. Ayoze var stórkostlegur í dag," sagði Matt Ritchie um Perez sem skoraði þrennu.
„Það var sama sagan í seinni hálfleik, við byrjuðum ekki vel en gerðum alveg út um leikinn með þriðja markinu."
Matt Ritchie var spurður út í framtíð Rafa Benitez hjá Newcastle.
„Auðvitað viljum við hafa hann áfram en það er auðvitað undir honum komið og stjórninni hvernig þetta fer, við höfum ekkert um það að segja."


