Dagur Austmann lék sinn fyrsta leik í átta mánuði
Dagur Austmann Hilmarsson leikmaður ÍBV kom inná sem varamaður í 1-0 sigri ÍBV á Stjörnunni í Mjólkurbikarnum í gær.
Dagur var að koma til baka úr meiðslum eftir að hafa fótbrotnað á æfingu hjá ÍBV í byrjun september á síðasta ári. Hann kom inná í framlengingunni en markalaust var eftir venjulegan leiktíma.
Dagur var að koma til baka úr meiðslum eftir að hafa fótbrotnað á æfingu hjá ÍBV í byrjun september á síðasta ári. Hann kom inná í framlengingunni en markalaust var eftir venjulegan leiktíma.
Pedró Hipolitó þjálfari ÍBV skipti Degi inná á 101. mínútu leiksins fyrir Evariste Ngolok.
„Það er frábært að vera kominn til baka eftir erfiðan enduhæfingartíma. Ég þurfti að fara í aðgerð og var fjóra mánuði í gipsi. Endurhæfingin hófst í janúar en það kom bakslag í mars en síðan þá hefur allt gengið eins og í sögu. Ég er að komast í hörkuform og finn ekki fyrir meiðslunum. Núna þarf ég bara að koma mér í leikæfingu á sem skemmstum tíma," sagði Dagur í samtali við Fótbolta.net.
Dagur lék 14 leiki með ÍBV í Pepsi-deildinni síðasta sumar en hann gekk til liðs við ÍBV frá Aftureldingu fyrir síðasta tímabil.



