Pochettino: Óheppnir en svona er fótboltinn
Bournemouth vann sigur á níu leikmönnum Tottenham í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag. 1-0 endaði leikurinn eftir að Nathan Ake skoraði með skalla eftir hornspyrnu Ryan Fraser á fyrstu mínútu uppbótartíma.
Sjá einnig: Ake tryggði Bournemouth sigur í uppbótartíma.
Tottenham missti tvo leikmenn af velli með rautt spjald en Heung-Min Son og Juan Foyth voru báðir sendir í sturtu sitt hvoru megin við hálfleikspásuna.
Maurico Pochettino, stjóri Tottenham, var spurður út í rauðu spjöldin, leikinn í heild sinni og seinni viðureign Tottenham gegn Ajax í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
„Ég virði ákvörðun dómarans og hef engu við það að bæta. Svona er fótboltinn. Óheppilegt en auðvitað er erfitt að finna eitthvað jákvætt," sagði svekktur Pochettino eftir leik.
„Það er erfitt að spila án tveggja leikmanna. Við verðum að halda áfram og við munum ekki breyta ákvörðun dómarans. Tveir úrslitaleikir eru framundan. Allt er í okkar hendi ennþá. Ef okkur mistekst þá verðum við samt stoltir því það bjóst enginn við Tottenham í þessari stöðu."
„Það sem gerist, gerist. Við erum í baráttunni með fimm öðrum liðum. Það er ómögulegt fyrir öll að enda í efstu fjórum sætunum. Hvað sem gerist í undanúrslitaleiknum þá verð ég stoltur af strákunum."
Ajax leiðir 0-1 eftir fyrri leik liðanna á heimavelli Tottenham. Seinni leikurinn fer fram á miðvikudag í Amsterdam.

Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 10 | 9 | 0 | 1 | 15 | 5 | +10 | 27 |
| 2 | Brighton | 10 | 7 | 1 | 2 | 26 | 7 | +19 | 22 |
| 3 | Man City | 10 | 7 | 0 | 3 | 21 | 13 | +8 | 21 |
| 4 | Liverpool | 10 | 5 | 3 | 2 | 14 | 10 | +4 | 18 |
| 5 | Chelsea | 10 | 5 | 1 | 4 | 19 | 16 | +3 | 16 |
| 6 | Everton | 10 | 4 | 4 | 2 | 12 | 10 | +2 | 16 |
| 7 | Bournemouth | 10 | 4 | 3 | 3 | 16 | 14 | +2 | 15 |
| 8 | Brentford | 10 | 3 | 5 | 2 | 16 | 11 | +5 | 14 |
| 9 | Leeds | 10 | 3 | 5 | 2 | 10 | 8 | +2 | 14 |
| 10 | Aston Villa | 10 | 3 | 4 | 3 | 14 | 17 | -3 | 13 |
| 11 | Tottenham | 10 | 3 | 3 | 4 | 10 | 11 | -1 | 12 |
| 12 | Newcastle | 10 | 3 | 3 | 4 | 13 | 16 | -3 | 12 |
| 13 | Hull City | 10 | 2 | 5 | 3 | 11 | 11 | 0 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 10 | 3 | 2 | 5 | 15 | 20 | -5 | 11 |
| 15 | Fulham | 10 | 2 | 4 | 4 | 10 | 12 | -2 | 10 |
| 16 | Nott. Forest | 10 | 2 | 3 | 5 | 9 | 13 | -4 | 9 |
| 17 | Coventry | 10 | 3 | 0 | 7 | 10 | 19 | -9 | 9 |
| 18 | Man Utd | 10 | 1 | 5 | 4 | 14 | 19 | -5 | 8 |
| 18 | West Ham | 38 | 10 | 9 | 19 | 46 | 65 | -19 | 39 |
| 19 | Burnley | 38 | 4 | 10 | 24 | 38 | 75 | -37 | 22 |
| 19 | Sunderland | 10 | 2 | 2 | 6 | 8 | 17 | -9 | 8 |
| 20 | Wolves | 38 | 3 | 11 | 24 | 27 | 68 | -41 | 20 |
| 20 | Crystal Palace | 10 | 2 | 1 | 7 | 10 | 24 | -14 | 7 |