Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 12. maí 2019 11:35
Elvar Geir Magnússon
Góð messusókn hjá Liverpool stuðningsmönnum
Mynd: Seljakirkja
Ólafur Jóhann Borgþórsson, prestur í Seljakirkju.
Ólafur Jóhann Borgþórsson, prestur í Seljakirkju.
Mynd: RÚV
Nú stendur yfir sérstök Liverpoolmessa í Seljakirkju en lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar verður leikin í dag.

Magnús Þór Jónsson, skólastjóri í Seljaskóla, er staddur í messunni og á myndbandi sem hann birti á Twitter sést að mætingin er ansi góð.

Það má segja að Liverpool þurfi á kraftaverki að halda í lokaumferðinni. Liðið er stigi á eftir toppliði Manchester City sem á útileik gegn Brighton.

„Þessi hugmynd kviknaði eftir leik Barcelona og Liverpool á þriðjudaginn, því margir töluðu um að kraftaverk hefði átt sér stað, þótt að ég ætli kannski ekkert að segja til um það. En þeir sýndu það sannarlega drengirnir að það er alltaf von. Og það er gott að taka það til sín. Og svo sjáum við svo margt annað, við sjáum baráttusönginn You'll Never Walk Alone, sem aldeilis rímar við hina kristnu trú. En þetta er í fyrsta skipti held ég sem áhangendur ensks úrvalsdeildarliðs koma saman sérstaklega í messu," sagði Ólafur Jóhann Borgþórsson, prestur í Seljakirkju, í viðtali við RÚV.

Lokaumferðin verður flautuð á klukkan 14.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner