Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 15. maí 2019 11:50
Arnar Daði Arnarsson
Gary um KA: Get ekki boðið kærustunni upp á það
Gary Martin í leik gegn FH í sumar.
Gary Martin í leik gegn FH í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gary Martin sóknarmaður Vals segir í samtali við Vísi að að gærdagurinn hafi verið mjög langur eftir að hann hafi farið á fund með Ólafi Jóhannessyni, þjálfara Vals þar sem honum var tilkynnt að hann mætti leita sér að nýju félagi og hann væri til sölu.

„Ég var að koma og er ekki að fara,“ sagði Gary í samtali við Kolbein Tuma Daðason fréttamann hjá Vísi.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur KA mikinn áhuga að fá Gary til sín. Hvorki Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA né Óli Stefán Flóventsson þjálfari liðsins hafa viljað tjá sig um málið við Fótbolta.net bæði í dag og í gær.

Gary Martin segir í samtali við Vísi að KA hafi hringt töluvert í sig og verið mjög áhugasamir. Hann segir hinsvegar að það henti honum ekki að fara á Akureyri.

Á Vísi segir að ástæðan sé sú að kærasta hans sé væntanleg frá Englandi eftir nokkra daga. Hann segist ekki geta boðið kærustunni upp á frekari ferðalag eftir flug og rútu til Reykjavíkur. Flug eða bílferð til Akureyrar, fram og til baka, sé ekki hægt að bjóða henni uppá.
Athugasemdir
banner
banner
banner