Jon Dahl Tomasson stjóri Blackburn var í skýjunum eftir sigur sinna manna á Leicester í enska bikarnum í gær.
„Þetta var magnað kvöld fyrir félagið. Ég bað leikmennina að vera hugrakka á boltann og mæta Leicester af fullum krafti. Þeir unnu Tottenham 4-1 fyrir stuttu. Leikmennirnir fylgdu leikplaninu fullkomlega," sagði Tomasson.
Blackburn komst í 2-0 áður en Kelechi Iheanacho minnkaði muninn. Þá fór svolítið um Tomasson.
„Við hefðum átt að vera búnir að gera útum leikinn en þetta var orðið stressandi í lokin. Það er hluti af fótboltanum en strákarnir sýndu anda, börðust til enda. Þetta er frábært fyrir félagið og leikmennan sem hafa skrifað nýjan kafla í okkar frábæru sögu."
Athugasemdir