Brasilíski miðjumaðurinn Fernando hjá Sevilla fékk fjögurra leikja bann eftir 3-2 tapið gegn Osasuna um helgina.
Fernando átti skelfilegan leik en hann skoraði sjálfsmark í leiknum áður en honum var skipt af velli.
Hann fékk síðan rauða spjaldið eftir að hann var farinn af velli fyrir ósæmilega hegðun í garð dómarans.
Leikmaðurinn bað dómarateymið afsökunar eftir leik en það breytti ekki miklu því hann er kominn í fjögurra leikja bann og missir því af mikilvægum leikjum með Sevilla.
Sevilla er í 14. sæti með 25 stig.
Athugasemdir