Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 01. mars 2023 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guardiola og Keane hrósa Foden - „Við tölum um lúxus vandamál"
Mynd: EPA

„Ferillinn hans var alltaf á uppleið. Hann hefur strögglað aðeins á þessu tímabili en hann er kominn aftur fyrir besta hlutann af tímabilinu. Hann hefur komið gríðarlega vel inn, fótboltinn borgar til baka þegar þú vinnur eins og hann," sagði Guardiola.

Foden opnaði sig eftir leikinn í gær og sagði að meiðsli hafa haft mikil áhrif á andlegu hliðina. Roy Keane hrósaði honum fyrir að opna sig.

„Það er gaman að hann komi fram og segi frá mikilvægi andlegrar heilsu. Hann hefur átt við meiðsli að stríða og þegar maður er ekki að spila mun það hafa áhrif á mann," sagði Keane.

„Við efuðumst um það hvort Foden kæmist í takt í næstu leikjum eða jafnvel síðustu leiki en hann hefur svo sannarlega gert það. Þetta sýnir áskorunina sem fótboltamenn eigast við. Ég veit að við tölum um þetta sem lúxus vandamál en þetta fer í hausinn þegar maður meiðist."


Athugasemdir
banner