Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 01. mars 2023 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísland í dag - KR og Víkingur mæta Lengjudeildarliðum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það eru tveir leikir í Lengjubikarnum í kvöld. KR fær Grindavík í heimsókn og Víkingur fær Gróttu í heimsókn.


KR og Grindavík mætast í riðli eitt en Grindavík hefur aðeins spilað einn leik á mótinu á meðan öll hin liðin í riðlinum eru búin að spila þrjá.

Eini leikurinn til þessa var 4-0 tap gegn HK en KR er með sex stig í 2. sæti en eina tapið kom gegn toppliði Vals.

Víkingur er á toppi riðils þrjú með fullt hús stiga eftir þrjá leiki en Grótta á enn eftir að ná í sigur, þrjú jafntefli og eitt tap.

Leikir dagsins

Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1

19:00 KR-Grindavík (KR-völlur)

Lengjubikar karla - A-deild, riðill 3

19:00 Víkingur R.-Grótta (Víkingsvöllur)


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner