Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. mars 2023 18:51
Brynjar Ingi Erluson
Sendu markverði Sevilla blómvönd
Mynd: EPA
Stuðningsmannafélag hollenska félagsins PSV Eindhoven sendi Marko Dmitrovic, markverði Sevilla, blómvönd eftir atburðinn sem átti sér stað í síðustu viku.

Dmitrovic lenti í leiðinlegu atviki í umspilsleiknum í Evrópudeildinni en stuðningsmaður PSV hljóp inn á völlinn og veittist að markverðinum.

Hann sá hins vegar við honum, skellti stuðningsmanninum í grasið og hélt honum þar til öryggisverðir komu og fjarlægðu hann.

Stuðningsmannafélag PSV sendi frá sér yfirlýsingu en félagið harmar atvikið og hefur nú sent Dmitrovic blómvönd til að biðjast afsökunar á þessu leiðinlega atviki.


Athugasemdir
banner
banner