Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 01. mars 2023 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Solomon að fara hamförum - Hefur skorað tvö keimlík mörk síðustu daga
Mynd: EPA

Manor Solomon hefur verið sjóðandi heitur fyrir framan markið í búningi Fulham í undanförnum leikjum.


Hann hefur skorað fjögur mörk í jafn mörgum leikjum en hann skoraði þegar Fulham sló Leeds úr leik í enska bikarnum í gær. Það var í fyrsta sinn sem hann var í byrjunarliðinu á þessari leiktíð.

Hann hefur séð um markaskorun í fjarveru Aleksandar Mitrovic en hann var í byrjunarliðinu í gær eftir að hafa verið fjarverandi í tveimur leikjum þar á undan.

Solomon tryggði Fulham stig gegn Wolves um helgina þegar hann jafnaði metin eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Það hefur vakið athygli að markið hans í gær og markið um helgina eru keimlík. Þau má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner