Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. mars 2023 12:17
Fótbolti.net
Stefan Ljubicic virðist á förum frá KR
Stefan Alexander Ljubicic.
Stefan Alexander Ljubicic.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Sóknarmaðurinn Stefan Alexander Ljubicic virðist á förum frá KR en samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru nokkur félög sem koma til greina.

Stefan gekk í raðir KR frá HK fyrir ári síðan en þessi 23 ára leikmaður skoraði tvö mörk í tuttugu leikjum fyrir Vesturbæjarliðið í deild og bikar á síðasta ári.

Mögulegt er að hann snúi aftur til HK en hann er einnig orðaður við Lengjudeildarlið Vestra og Grindavíkur. KR ku hafa látið fleiri félög vita að hann sé fáanlegur.

Hann hefur ekki komið við sögu hjá KR í Lengjubikarnum.

Frekari breytingar gætu orðið á leikmannahópi KR en sagt er að markvörðurinn Aron Snær Friðriksson gæti mögulega verið lánaður eftir að KR náði sér í norskan markvörð. Aron er orðaður við Vestra.
Athugasemdir
banner
banner
banner