Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   sun 05. nóvember 2017 14:24
Helgi Fannar Sigurðsson
Championship: Middlesbrough sigraði botnliðið
Boro-Menn gátu fagnað í dag
Boro-Menn gátu fagnað í dag
Mynd: Getty Images
Middlesbrough 1-0 Sunderland
1-0 Marcus Tavernier ('6)

Middlesbrough tók á móti Sunderland í hádegisleik í Championship-deildinni í dag.

Boro fékk óskabyrjun þegar Marcus Tavernier kom þeim yfir á 6. mínútu.

Markvörður Boro, Darren Randolph, átti toppleik og sá til þess að mark Tavernier reyndist eina mark leiksins og fór Boro með 1-0 sigur af hólmi.

Sigurinn færir liðið upp í 5. sæti deildarinnar en Sunderland situr á botninum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner