Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 06. mars 2023 21:26
Brynjar Ingi Erluson
Albert skoraði og lagði upp tvö í sigri Genoa
Albert Guðmundsson var frábær í kvöld
Albert Guðmundsson var frábær í kvöld
Mynd: Getty Images
Albert Guðmundsson átti stórleik er Genoa vann Cosenza, 4-0, í B-deildinni á Ítalíu í kvöld.

KR-ingurinn, sem er fastamaður í liði Genoa, lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Radu Dragusin. Hann tók aukaspyrnu sem rataði á Dragusin og stangaði varnarmaðurinn boltanum í netið.

Albert bætti við öðru marki Genoa á 57. mínútu eftir mistök hjá miðjumanni Cosenza. Sjötta mark Alberts á tímabilinu og hefur hann nú komið að fjórtán mörkum í öllum keppnum á tímabilinu.

Genoa skoraði tvö mörk til viðbótar og átti Albert meðal annars stoðsendinguna að þriðja markinu áður en hann fór af velli á 82. mínútu.

Genoa er í 2. sæti deildarinnar með 50 stig, ellefu stigum frá toppliði Frosinone.


Athugasemdir
banner
banner