Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 06. mars 2023 19:06
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Brentford og Fulham: Mitrovic fremstur en Palhinha í banni
Mynd: EPA
Brentford og Fulham eigast við í 26. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Samfélagsvellinum í Brentford í Lundúnum klukkan 20:00.

Brentford hefur ekki tapað síðustu ellefu deildarleikjum en liðið er í 9. sæti með 35 stig.

Thomas Frank, stjóri Brentford, gerir eina breytingu en Mikkel Damsgaard kemur inn fyrir Josh Dasilva.

Marco Silva gerir á meðan þrjár breytingar frá síðasta deildarleik. Aleksandar Mitrovic, Manor Solomon og Sasa Lukic koma inn fyrir Bobby Reid, Carlos Vinicius og svo Joao Palhinha sem tekur út leikbann.

Brentford: Raya, Hickey, Pinnock, Mee, Henry, Norgaard, Jensen, Damsgaard, Wissa, Toney, Mbeumo.

Fulham: Leno, Tete, Diop, Ream, Robinson, Reed, Lukic, Solomon, Pereira, Willian, Mitrovic.
Athugasemdir
banner