Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 06. mars 2023 18:50
Brynjar Ingi Erluson
Hakimi ferðaðist með PSG til München
Mynd: Getty Images
Achraf Hakimi, varnarmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi, ferðaðist með liðinu til München í dag, og það þrátt fyrir að vera með nauðgunarákæru á bakinu.

Franska saksóknarembættið lagði fram kæru á hendur Hakimi fyrir helgi en hann er ásakaður um að hafa nauðgað konu að heimili sínu þann 25. febrúar síðastliðinn.

Búið er að yfirheyra hann og heldur rannsókn málsins áfram en hann hefur samt sem áður verið að æfa með PSG og mun fá að spila með liðinu.

Hakimi ferðaðist með liðinu til München í dag og verður klár í að spila við Bayern í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum, en Hakimi er ekki í farbanni og því leyft að ferðast.

Hann hefur ekki verið með PSG í síðustu leikjum vegna meiðsla en það þykir heldur undarlegt að félagið leyfi honum að æfa og spila miðað við þær ásakanir sem hafa verið bornar á hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner