Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 06. mars 2023 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hefja samningaviðræður eftir dramatískt sigurmark
Reiss Nelson.
Reiss Nelson.
Mynd: EPA
Kantmaðurinn Reiss Nelson á mögulega von á nýjum samningi eftir að hann skoraði dramatískt sigurmark í 3-2 sigri á Bournemouth um helgina.

Það voru komnar átta mínútur fram yfir venjulegan leiktíma þegar Nelson skoraði með dúndurskoti.

Nelson hafði komið inn á sem varamaður í leiknum, en innkoma hans var virkilega góð.

Það er ekki hægt að segja að Nelson hafi verið í stóru hlutverki á þessu tímabili en þetta mark gæti reynst gríðarlega mikilvægt í titilbaráttu Arsenal.

Samningur hans rennur út í sumar og samkvæmt Daily Mail þá hefur félagið hafið viðræður við hann um nýjan samning eftir sigurinn á móti Bournemouth. Þetta mark gæti fært honum nýjan samning hjá uppeldisfélaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner