Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 06. mars 2023 17:00
Elvar Geir Magnússon
Maignan í Meistaradeildarhóp Milan
Mike Maignan.
Mike Maignan.
Mynd: EPA
Markvörðurinn Mike Maignan er kominn inn í Meistaradeildarhóp AC Milan fyrir seinni leikinn gegn Tottenham.

Maignan var skráður í hópinn í upphafi tímabils en meiddist á kálfa og var frá í um fimm mánuði.

Þessi 27 ára Frakki mætti aftur í 2-0 sigri Milan gegn Atalanta í lok síðasta mánaðar og spilaði allar 90 mínúturnar í 2-1 tapinu gegn Fiorentina um helgina.

Milan vann fyrri leikinn 1-0 en seinni leikurinn verður á Tottenham leikvangnum á miðvikudaginn.
Athugasemdir
banner