Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 06. mars 2023 18:29
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho fagnaði ekki marki Mancini
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, þjálfari Roma, var óvenju rólegur yfir leik liðsins við Juventus í Seríu A í gær.

Portúgalski þjálfarinn fékk þriðja rauða spjaldið á tímabilinu í 2-1 tapi Roma gegn Cremonese fyrir viku síðan eh var leyft að vera á bekknum hjá Roma í gær.

Hegðun hans var til fyrirmyndar og hreyfði það ekki við honum er Gianluca Mancini skoraði stórbrotið mark snemma í síðari hálfleik en það reyndist sigurmark leiksins.

Mourinho var að ræða við Tammy Abraham sem var að undirbúa sig að koma inná og þegar Mancini skoraði var Mourinho ekkert að eyða tíma í að fagna markinu heldur hélt áfram að ræða við aðstoðarmann sinn á meðan Abraham fór að fagna en hægt er að sjá þetta hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner