Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 06. mars 2023 20:18
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Þung pressa Brentford skilaði sér
Mynd: Getty Images
Brentford er komið í forystu gegn Fulham á Samfélags-leikvanginum í Brentford en miðvörðurinn Ethan Pinnock skoraði fyrsta markið á 6. mínútu.

Heimamenn settu þunga pressu á Fulham strax í byrjun leiks en Bernd Leno var magnaður fyrstu mínúturnar og varði tvö dauðafæri frá Bryan Mbeumo og eitt frá Ivan Toney áður en Pinnock kom boltanum í netið.

Brentford fékk hornspyrnu sem var hreinsuð út í teiginn á Mikkel Damsgaard sem tók einn góðan snúning áður en hann kom boltanum inn í teiginn á Pinnock sem skaut boltanum í átt að marki en heppnin var ekki alveg með Fulham því boltinn fór af Tim Ream og framhjá Leno í markinu.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.

Sjáðu markið
Athugasemdir
banner
banner