Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 06. mars 2023 14:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu viðbrögð Carragher og Neville við öllum sjö mörkunum
Gary Neville og Jamie Carragher.
Gary Neville og Jamie Carragher.
Mynd: EPA
Liverpool niðurlægði erkifjendur sína í Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær, 7-0.

Leikurinn var sýndur á Sky Sports í Bretlandi en þar voru það Gary Neville og Jamie Carragher sem sáu um að lýsa leiknum ásamt Martin Tyler.

Neville er fyrrum leikmaður Man Utd og Carragher er fyrrum leikmaður Liverpool, en í dag eru þeir tveir af vinsælustu fótboltasérfræðingum Bretlandseyja.

Það var myndavél á þeim á Anfield í gærkvöldi en Sky Sports er búið að birta myndband af þeim að bregðast við öllum sjö mörkunum.

Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan; Carragher skiljanlega mun glaðari en Neville.


Athugasemdir
banner
banner
banner