„Ég er mjög sáttur en þetta var erfiður leikur," sagði Guðlaugur Baldvinsson, þjálfari Keflavík, eftir sigur sinna manna gegn Fram í kvöld.
Það var fátt um fína drætti í þessum leik og var Laugi sammála því.
„Fyrri hálfeikurinn var náttúrlega engin gríðarlega skemmtun fyrir áhorfendur, hann var ekki skemmtilegur, en þá voru liðin að þreyfa hvort á öðru og þeir auðvitað með nýjan þjálfara og nýtt kerfi."
„Seinni hálfleikurinn fannst mér þó góður af okkar hálfu."
Fram mætti með nýtt leikkerfi í þennan leik en þeir voru að spila með fimm manna varnarlínu en það kom Lauga aðeins á óvart.
„Ég reiknaði svosem ekki alveg með því, en við bjuggum okkur samt undir það og fórum aðeins í gegnum það og það var ágætt að hafa farið í þannig undirbúning."
Þetta var fimmti sigurleikur liðsins í röð í deildinni en Laugi vill alls ekki að liðið fari fram úr sér.
„Við stefnum bara á þrjú stig í næsta leik. Ég hef sagt það áður og mun segja það áfram að við getum ekkert farið fram úr okkur í þessu, við tökum bara einn leik í einu."
„Við gerðum vel hér, fengum þrjá frábæra punkta en það er annar leikur eftir nokkra daga."
Athugasemdir






















