þri 07. mars 2023 22:06
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Sheffield og West Brom aftur á sigurbraut
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images

Það fóru þrír leikir fram í Championship deildinni í kvöld þar sem Sheffield United vann mikilvægan sigur á útivelli gegn Reading.


Iliman Ndiaye gerði eina mark leiksins á 60. mínútu í jöfnum leik og tryggði þar með dýrmæt stig í toppbaráttunni. Sheffield, sem hefur verið að misstíga sig mikið að undanförnu, er í öðru sæti deildarinnar, með sjö stiga forystu á Middlesbrough í þriðja sæti.

Annað sætið er gríðarlega eftirsótt þar sem það veitir þátttökurétt í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

West Brom lagði þá Wigan að velli þökk sé marki frá Daryl Dike í fyrri hálfleik. Heimamenn í Bromwich voru mun betri og óheppnir að vinna ekki stærra. Þeir eru fjórum stigum frá umspilssæti eftir sigurinn.

Að lokum gerðu Huddersfield og Bristol City markalaust jafntefli í nokkuð leiðinlegum leik þar sem gestirnir frá Bristol voru aðeins sterkari aðilinn.

Wigan og Huddersfield deila botnsæti deildarinnar eftir leiki kvöldsins og eru sex stigum frá öruggu sæti. Þau gætu því verið að falla niður í C-deildina ásamt Blackpool. Botnliðin þrjú eru með 32 stig og er Cardiff í næsta sæti fyrir ofan með 38 stig.

Huddersfield 0 - 0 Bristol City

Reading 0 - 1 Sheffield Utd
0-1 Iliman Ndiaye ('60 )

West Brom 1 - 0 Wigan
1-0 Daryl Dike ('28 )


Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leeds 38 25 7 6 70 28 +42 82
2 Leicester 37 26 4 7 74 33 +41 82
3 Ipswich Town 38 24 9 5 80 49 +31 81
4 Southampton 36 22 7 7 73 47 +26 73
5 West Brom 38 19 9 10 59 36 +23 66
6 Norwich 38 18 7 13 69 54 +15 61
7 Hull City 37 16 10 11 53 46 +7 58
8 Coventry 37 15 12 10 59 43 +16 57
9 Preston NE 37 16 8 13 49 54 -5 56
10 Middlesbrough 38 16 6 16 53 52 +1 54
11 Cardiff City 38 16 5 17 43 51 -8 53
12 Sunderland 38 14 6 18 48 45 +3 48
13 Watford 38 12 12 14 53 51 +2 48
14 Bristol City 38 13 8 17 42 45 -3 47
15 Swansea 38 12 10 16 48 58 -10 46
16 Millwall 38 11 10 17 36 50 -14 43
17 Blackburn 38 11 9 18 51 64 -13 42
18 Plymouth 38 10 11 17 54 62 -8 41
19 Stoke City 38 11 8 19 35 53 -18 41
20 QPR 38 10 10 18 36 50 -14 40
21 Birmingham 38 10 9 19 42 59 -17 39
22 Huddersfield 38 8 15 15 42 61 -19 39
23 Sheff Wed 38 11 5 22 30 61 -31 38
24 Rotherham 38 3 11 24 30 77 -47 20
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner