Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 07. mars 2023 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Einu vítaspyrnumarki frá því að jafna met Yaya Toure
Ivan Toney
Ivan Toney
Mynd: EPA
Ivan Toney, framherji Brentford á Englandi, skoraði úr tíundu vítaspyrnu sinni í ensku úrvalsdeildinni í gær er hann gerði annað mark liðsins í 3-2 sigri á Fulham.

Toney hefur nýtt allar tíu vítaspyrnur sínar í úrvalsdeildinni en mark hans í gær var það fimmtánda á tímabilinu.

Aðeins einn leikmaður skákar Toney þegar það kemur að nýtingu á vítaspyrnum en það er Fílabeinsstrendingurinn Yaya Toure.

Hann skoraði úr öllum ellefu spyrnum sínum hjá Manchester City í ensku úrvalsdeildinni og þarf því Toney aðeins að skora úr einni spyrnu í viðbót til að jafna metið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner