Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 07. mars 2023 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Erkifjendurnir búnir að setja sig í samband við umboðsmenn Rabiot
Rabiot fagnar marki með Juventus.
Rabiot fagnar marki með Juventus.
Mynd: Getty Images
Manchester United hugsaði um að kaupa Adrien Rabiot frá Juventus síðasta sumar en það gekk ekki eftir á endanum þar sem launakröfur hans voru of háar.

Samkvæmt fjölmiðlinum 90min er félagið enn að hugsa um Rabiot en hann verður samningslaus í sumar.

United er hins vegar ekki eina félagið sem hefur áhuga á franska landsliðsmanninum því Liverpool vill einnig krækja í hann; erkifjendurnir eru að berjast um Rabiot.

Liverpool og United eru bæði búin að setja sig í samband við umboðsmenn Rabiot en þau mega gera það þar sem leikmaðurinn á minna en sex mánuði eftir af samningi sínum.

Rabiot, sem er 27 ára gamall, ólst upp hjá Paris Saint-Germain en hefur leikið með Juventus frá 2023.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner