Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 07. mars 2023 23:43
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Bjarki skoraði fimm í stórsigri KÁ
Mynd: Facebook-síða KÁ

KM 0 - 8 KÁ
0-1 Rómeó Máni Ragnarsson ('4 )
0-2 Bjarki Sigurjónsson ('31 )
0-3 Bjarki Sigurjónsson ('35 , Mark úr víti)
0-4 Bjarki Sigurjónsson ('47 )
0-5 Ágúst Jens Birgisson ('57 )
0-6 Bjarki Sigurjónsson ('60 )
0-7 Bjarki Sigurjónsson ('84 )
0-8 Milovan Barac ('88 )


Bjarki Sigurjónsson var maður leiksins er KÁ, Knattspyrnufélagið Ásvöllum, rúllaði yfir KM, Knattspyrnufélagið Miðbær, í C-deild Lengjubikarsins í kvöld.

Bjarki skoraði fimm í átta marka sigri. Rómeó Máni Ragnarsson, Ágúst Jens Birgisson og Milovan Barac komust einnig á blað.

Liðin áttust við í 2. umferð riðlakeppninnar og er KÁ með fullt hús stiga og markatöluna 13-2.

KM situr á botninum án stiga og með 0-13 í markatölu eftir tap gegn Árborg í fyrstu umferð.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner