Chelsea og Borussia Dortmund eigast við í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld en þar gætu örlög Graham Potter ráðist.
Lærisveinum Potter tókst að vinna sinn fyrsta leik síðan í janúar er það vann Leeds um helgina, 1-0.
Nú er hins vegar töluvert meira undir. Liðið er 1-0 undir í einvíginu gegn Borussia Dortmund um sæti í 8-liða úrslitum og þarf það því á góðri frammistöðu að halda.
Benfica mætir þá Club Brugge en portúgalska liðið vann fyrri leikinn í Belgíu, 2-0.
Leikir dagsins:
20:00 Chelsea - Dortmund
20:00 Benfica - Club Brugge
Athugasemdir