Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 07. mars 2023 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu sjötta deildarmark Alberts á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson skoraði í 4-0 sigri Genoa á Cosenza í B-deildinni á Ítalíu í gær en þetta var sjötta deildarmark hans á tímabilinu.

Varnarmaður Cosenza gerði slæm mistök sem Milan Badelj nýtti sér og komst inn í sendinguna.

Boltinn fór þaðan á Albert sem keyrði inn í teiginn og lagði hann í nærhornið og í netið.

Albert lagði upp tvö mörk til viðbótar í leiknum og hefur því komið að fjórtán mörkum á tímabilinu en mark hans í gær má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner