Íslenski framherjinn Elías Már Ómarsson skoraði fyrsta mark sitt fyrir franska B-deildarliðið Nimes í 3-0 sigri á Valenciennes í kvöld.
Elías kom til Nimes frá Excelsior á dögunum og byrjaði í sínum fyrstsa leik í síðustu umferð.
Hann var aftur í byrjunarliðinu í kvöld og skoraði fyrsta mark liðsins á 56. mínútu með góðum skalla eftir hornspyrnu. Honum var skipt af velli sjö mínútum síðar.
Nimes vann leikinn 3-0 þar sem Yassine Benrahou skoraði eitt og lagði upp tvö.
Markið sem Elías skoraði má sjá hér fyrir neðan.
Sjáðu markið
Athugasemdir