Mainoo fær nýjan samning - Goretzka og Gomes orðaðir við Man Utd - Bremer og Kerkez við Liverpool
   fös 20. september 2024 16:30
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Umspilið, bikarúrslitin og Rúnar Kristins á X977 á morgun
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í beinni frá Suðurlandsbraut alla laugardaga milli 12 og 14 á X977.

Elvar Geir og Tómas Þór verða á sínum stað við stýrið á morgun og með þeim verður Sæbjörn Steinke.

Rætt er um fréttir vikunnar, umspil Lengjudeildarinnar, bikarúrslitaleikinn, Fótbolti.net bikarinn, komandi leiki í Bestu deildinni og fleira.

Gestur þáttarins er Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram.


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner