„Maður þarf að rísa sem fyrst á fætur, það eru fjórir dagar í næsta leik," sagði Milos Milojevic, þjálfari Breiðabliks, eftir 2-0 tap gegn grönnunum í Stjörnunni í Garðabænum í kvöld.
„Við þurfum ekki að vorkenna okkur, við þurfum að laga það sem við gerðum illa í kvöld," sagði Milos.
„Við þurfum ekki að vorkenna okkur, við þurfum að laga það sem við gerðum illa í kvöld," sagði Milos.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 0 Breiðablik
Hvað var það sem fór úrskeiðis í kvöld?
„Við gáfum þeim tvö mörk. Þeir sköpuðu ekki þessi tvö mörk, við gáfum þeim horn og við gáfum þeim boltann í fætur."
„Þeir klára sín færi og við klárum ekki okkar færi."
„Við áttum að vera löngu búnir að vera að opna þá og þá hefði leikurinn verið öðruvísi. En við náðum því ekki í kvöld."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir






















