Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 10. janúar 2023 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arteta vill fá framherja í janúar
Talið í mánuðum hvenær Gabriel Jesus snýr aftur.
Talið í mánuðum hvenær Gabriel Jesus snýr aftur.
Mynd: EPA
Talað var um að Gabriel Jesus, sóknarmaður Arsenal, yrði frá í þrjá mánuði eftir að hann gekkst undir hnéaðgerð í desember. Arsenal og Mikel Arteta hafa hinsvegar ekki viljað setja neinn tímaramma varðandi endurkomuna.

Eftir sigurinn gegn Oxford í bikarnum í gær sagði Arteta þó að það væri talið í mánuðum hvenær Jesus myndi snúa aftur. Hann vill fá inn sóknarmann í janúarglugganum.

Jesus verður frá næstu mánuðina og á meðan er liðið aðeins með Eddie Nketiah sem er að nýta tækifærið en hann skoraði tvö mörk í sigri liðsins á Oxford í enska bikarnum í gær.

„Vandamálið er að við erum bara með einn framherja og að lifa af í þetta marga mánuði þangað til Gabriel Jesus snýr aftur er ekki auðvelt. Við verðum að ná því mesta út úr leikmönnunum sem við erum með. Yrði frábært ef við fengum einhverja styrkingu," sagði Arteta.

Nketiah hefur skorað sex mörk á þessari leiktíð í öllum keppnum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner