Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 10. mars 2023 12:30
Elvar Geir Magnússon
Díaz, Thiago og Gomez ekki farnir að æfa með liðinu
Thiago Alcantara.
Thiago Alcantara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag en Liverpool heimsækir Bournemouth í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar á morgun.

Hann gaf þar meðal annars upplýsingar Luis Díaz, Thiago Alcantara og Joe Gomez.

„Enginn af þeim er klár. Þeir eru allir á misjöfnum stað. Joey gæti byrjað að æfa með okkur í byrjun næstu viku. Ég vona að Luis geti komið aftur eftir landsleikjagluggann. Sjáum til með Thiago. Enginn af þeim hefur æft enn með liðinu," segir Klopp.

Bournemouth hefur harma að hefna en Liverpool vann 9-0 sigur þegar liðin mættust á Anfield fyrr á tímabilinu.

„Leikmenn Bournemouth munu berjast eins og brjálæðingar, þeir eru að berjast fyrir lífi sínu í deildinni," segir Klopp um leikinn á morgun.
Athugasemdir
banner
banner