Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 10. mars 2023 19:10
Brynjar Ingi Erluson
Mun aldrei svara spurningum um Mbappe
Mynd: EPA
Franski framherjinn Kylian Mbappe er áfram orðaður við spænska félagið Real Madrid en Carlo Ancelotti, þjálfari Madrídinga, er orðinn þreyttur á spurningum blaðamanna um þennan ágæta leikmann Paris Saint-Germain.

Á síðasta ári var Mbappe nálægt þvi að ganga í raðir Real Madrid en eigendur PSG buðu honum samning sem hann gat ekki hafnað.

Samningstilboðið gerði hann að einum launahæsta leikmanni heims og fékk hann þá meiri völd hjá félaginu.

Samningurinn gildir til 2025 en aftur er sögusagnir komnar á kreik um að hann gæti farið til Real Madrid. Ancelotti neitar hins vegar að tala um hann.

„Væri ég til í að fá Mbappe? Þú getur spurt mig í dag, eftir tvær vikur eða þrjá mánuði en ég mun aldrei svara þessari spurningu,“ sagði Ancelotti.

Mbappe er sagður opinn fyrir því að yfirgefa PSG í sumar og þá sérstaklega eftir að liðinu mistókst að komast áfram í Meistaradeild Evrópu.
Athugasemdir
banner
banner
banner