Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 10. mars 2023 14:49
Elvar Geir Magnússon
Vill ekki ræða það að Walker hafi berað kynfæri sín - „Hans einkamál“
Walker á æfingasvæði Manchester City.
Walker á æfingasvæði Manchester City.
Mynd: Getty Images
Lögreglan á Bretlandseyjum er með til rannsóknar mál Kyle Walker, bakvarðar Manchester City, en það náðist á öryggismyndavél þegar hann dró niður buxurnar á bar og sýndi tveimur konum kynfæri sín.

Walker spilaði með City þegar liðið vann Newcastle 2-0 í ensku úrvalsdeildinni á laugardag og hann fór síðan á fyllerí með vinum sínum á sunnudeginum.

Lögreglan segir málið til rannsóknar en að enginn hafi verið handtekinn vegna þess. Umboðsmaður Walker og Manchester City hafa bæði neitað að tjá sig.

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, var spurður út í málið á fréttamannafundi í dag.

„Þetta er hans einkamál. Við leysum það innbyrðis með honum. Þetta er ekki staðurinn til að ræða einkamál," sagði Guardiola en leikmenn City fengu tveggja daga frí eftir leikinn gegn Newcastle.

Walker er 32 ára, hann hefur spilað fyrir Manchester City síðan sumarið 2017 þegar hann kom frá Tottenham á 45 milljónir punda. Hann hefur leikið 73 landsleiki fyrir England og tekið þátt í tveimur lokakeppnum HM.
Athugasemdir
banner
banner
banner