„Þetta var hörku fyrri hálfleikur þar sem bæði lið áttu einhverja sénsa en síðan fannst mér seinni hálfleikur hálf sorglegur af okkar hálfu, ekki alveg það sem við plönuðum þannig frekar svekkjandi fyrir okkur að hafa ekki staðið okkur betur" Sagði Agnes Þóra markmaður Þróttara um 0-0 niðurstöðuna á móti Selfossi í kvöld.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 - 0 Selfoss
„Nei, meira búið að vera jákvæður munur. Það er búið að vera stígandi. Síðan áttum við slakan leik á móti Keflavík fyrir tveimur vikum. HK/Víkingur þorði ekki að keppa við okkur því það vantaði einn leikmann svo við erum ekki búnar að spila í tvær vikur. Við höfðum viljað fá betri leik núna." sagði Agnes þegar hún var spurð hvort að henni finndist munur á liðinu sínu síðan í fyrstu umferð þegar þær unnu Selfoss 2-1
„Ég er hávaxin kona með stór skref og hleyp rosalega hratt einsog flestir vita. Ég kasta boltanum upp og er þá komin fyrir utan teig þegar ég sparka í boltann. Snerti aldrei með höndum fyrir utan teig. Það má ekki. Þetta var einhver tólf ára strákur á línunni eins og er oft í 1.deild kvenna." sagði Agnes um atvikin þegar hún var tvisvar dæmd brotleg fyrir það að fara með boltann út fyrir teig þegar hún var að sparka út. Selfoss fengu fyrir það stórhættulegar aukaspyrnur.
Agnes spilaði sem útileikmaður upp alla yngri flokka KR, á að baki yngri landsleiki og á tugi leikja í efstu deild sem slíkur. Nú er hún orðin einn af betri markmönnum 1.deildar. Um það hafði Agnes að segja: „Nei, ég er búin að slíta krossbönd svo oft að ég get ekki hlaupið lengur þannig að ég þarf bara að standa í staðinn"
Að lokum sagði Agnes „Við ásamt svona sex eða sjö liðum ætlum upp um deild svo það verður spennandi að sjá hver fer upp!"
Athugasemdir























