Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fös 11. ágúst 2017 22:31
Brynjar Ingi Erluson
Grétar Sigfinnur: Býr til eitthvað úr engu og skorar geggjað mark
Grétar Sigfinnur Sigurðarson
Grétar Sigfinnur Sigurðarson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grétar Sigfinnur Sigurðararson, leikmaður Þróttar R. í Inkasso-deildinni, var auðvitað svekktur með að fá ekki alla vega stig út úr leiknum gegn Keflavík í kvöld. Lasse Rise sá til þess að Keflavík myndi taka öll stigin.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  0 Þróttur R.

„Þetta var leikur tveggja frábæra liða sem eru í efstu sætunum og eftiráhyggja fannst mér þetta jafnteflisleikur. Það var X-faktor sem þurfti til að skora í þessum leik og geggjað mark sem hann skorar en á móti er þetta stöngin út og bjargað á línu hinum megin á vellinum," sagði Grétar við Fótbolta.net.

„Þetta voru góðar varnir beggja liða. Það er svekkjandi að hafa alla vega ekki fengið stig út úr þessu."

Grétar segir að Keflavík hafi í raun aldrei náð að opna liðið og að þetta hafi svolítið verið stöngin út hjá gestunum.

„Þetta var á síðasta þriðjungnum þar sem við vorum alltaf að koma okkur í stöður en náðum aldrei að opna þá. Þetta var stöngin út þar, bókstaflega og það er pirrandi að hafa ekki nýtt þetta og áttum í engum vandræðum með þá og þeir opnuðu okkur aldrei og ég held að þeir hafi ekki átt færi í leiknum. Eftir fast leikatriði ná þeir að opna okkur og býr til eitthvað úr engu og skorar geggjað mark."

Þróttur er þrátt fyrir þetta áfram í toppbaráttu. Fylkir og Þróttur eru bæði með 30 stig í öðru og þriðja sæti.

„Við þurfum að hugsa um hvað er í gangi hjá okkur. Þetta er enn undir okkur komið og eigum Fylki eftir svo við þurfum að vinna þá, það eru sex leikir eftir og þetta er búið að vera mjög ásættanlegt í sumar," sagði hann ennfremur.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner