Casemiro er á leið í fjögurra leikja bann eftir að hafa fengið sitt annað rauða spjald á tímabilinu í markalausu jafntefli gegn Southampton í dag.
Hann mun missa af leik gegn Fulham í FA bikarnum og leikjum í úrvalsdeildinni gegn Newcastle á útivelli og gegn Brentford og Everton á Old Trafford.
Þá er óvíst með þátttöku unga leikmannsins Alejandro Garnacho. Hann byrjaði á bekknum í dag en kom inná í seinni hálfleiknum en meiddist eftir að Kyle Walker-Peters tæklaði hann.
Hann sást yfirgefa völlinn á hækjum og með spelku utanum fótinn en Erik ten Hag var spurður út í meiðslin eftir leikinn.
„Já, þetta var slæm tækling. Ökklinn snérist, ég tók enga áhættu og tók hann útaf," sagði Ten Hag í samtali við MUTV.
???? Alejandro Garnacho down injured from the tackle from Kyle Walker-Peters. #MUNSOU pic.twitter.com/Zt6AjNnf1n
— Football Talk (@FootballTalkHQ) March 12, 2023
Athugasemdir