Southampton gerði jafntefli gegn Manchester United á Old Trafford í dag en Ruben Selles stjóri liðsins var ekki sáttur með stigið.
Southampton var manni fleiri síðasta klukkutímann eftir að Casemiro hafði verið rekinn af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik.
Selles vildi taka öll stigin á Old Trafford í dag.
„Við erum ekki ánægðir, við töluðum um að koma hingað og vinna leikinn. Við gerðum okkar besta til að inna svo við erum ekki sáttir með stigið en mjög ánægðir með frammistöðuna," sagði Selles.
Southampton er enn á botni deildarinnar en liðið hefði getað skotist upp í 16. sæti með sigri í dag.
Athugasemdir