Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 13. febrúar 2023 20:51
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Everton refsað eftir skalla í stöng
Mynd: EPA

Liverpool er 1-0 yfir í leikhlé í nágrannaslag gegn Everton. Mohamed Salah gerði eina markið eftir frábæra skyndisókn þar sem Darwin Nunez var drifkrafturinn.


Nunez spretti með boltann frá eigin vítateigslínu alla leið að vítateigslínu Everton þar sem hann gaf boltann fyrir. Jordan Pickford fór í stórfurðulega skógarferð og auðvelt fyrir Salah að skora í opið mark.

Skyndisóknin kom eftir hornspyrnu Everton þar sem James Tarkowski skallaði boltann í stöngina. Boltinn barst til Dwight McNeil sem mistókst að koma honum á markið og geystust leikmenn Liverpool í skyndisókn.

Það tók Nunez og Salah um 10 sekúndur að spretta upp völlinn.

Vel refsað hjá Liverpool sem er 1-0 yfir eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik.

Sjáðu markið


Athugasemdir
banner
banner
banner