Fotbolti.net
13.05.26 - 18:29
Viktor Ingi Valgarðsson

Byrjunarlið HK og Víkings: Sex breytingar hjá Víkingi - Ein hjá HK eftir tap

Ármann Ingi Finnbogason byrjar

Ármann Ingi Finnbogason byrjar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn

16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eru hafin og eitt af leikjum kvöldsins fer fram í Kórnum, þar sem HK fær Víking R. 

Verðugt verkefni fyrir Lengjudeildarlið HK að fá Víkinga í þessum 16-liða úrslitum þar sem sæti í 8-liða úrslitum er í boði fyrir sigurliðið. 

Lestu um leikinn: HK 0 - 2 Víkingur R.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari HK gerir aðeins eina breytingu á byrjunarliði sínu eftir tapið gegn Vestra í Lengjudeildinni. Sú breyting er að Aron Kristófer Lárusson dettur á bekkinn fyrir Viktor Helga Benediktsson.

Víkingar hrista vel í hópnum eftir góðan 6-0 sigur á Þór í Bestu deildinni fyrir nokkrum dögum síðan. Sex breytingar er á byrjunarliðinu, Viktor Örlygur, Erlingur, Tarik, Aron Elís Þrándar, Davíð Örn og Ármann Ingi koma allir í byrjunarliðið. 

Það eru því heldur betur einnig vel mannaður bekkur hjá Víkingum í kvöld. Elías Már, Óskar Bogga, Valdimar Þór, Karl Friðleifur, Daníel Hafsteins og Helgi Guðjónsson taka sér allir sæti á bekknum. 

Byrjunarlið HK

Ólafur Örn Ásgeirsson, Sigurður Gunnar Jónsson, Þorsteinn Aron Antonsson, Jóhann Þór Arnarsson, Atli Hrafn Andrason, Svavar Örn Þórðarson, Dominik Radic, Ívar Örn Jónsson, Magnús Arnar Pétursson, Viktor Helgi Benediktsson, Tumi Þorvarsson

Byrjunarlið Víkingur R.

Aron Snær Friðriksson, Peter Oliver Ekroth (fyrirliði), Gunnar Vatnhamar, Erlingur Agnarsson, Viktor Örlygur Andrason, Gylfi Þór Sigurðsson, Jóhannes Kristinn Bjarnason, Tarik Ibrahimagic, Aron Elís Þrándarson, Davíð Örn Atlason, Ármann Ingi Finnbogason

Viktor Helgi Benediktsson er eina byrjunarliðs breytingin hjá HK

Viktor Helgi Benediktsson er eina byrjunarliðs breytingin hjá HK

Canon

Mynd: HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.