Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   þri 14. febrúar 2023 08:20
Ívan Guðjón Baldursson
Ancelotti: Fer ekki héðan án þess að vera rekinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er heitt undir þjálfarasæti Carlo Ancelotti hjá Real Madrid, þar sem félagið virðist vera að dragast afturúr Barcelona í spænska boltanum. Barca er með góða forystu á toppi deildarinnar og vann sannfærandi sigur í úrslitaleik Ofurbikarsins fyrir mánuði síðan.


Ancelotti hefur verið orðaður við brasilíska landsliðið og var spurður út í orðróminn á fréttamannafundi.

„Ég fer ekki héðan nema ég verði rekinn," sagði Ancelotti eftir sigur í úrslitaleik HM félagsliða. „Ég er stoltur af því að vera partur af sögu Real Madrid."

Real Madrid vann 5-3 gegn Al Hilal í úrslitaleik HM félagsliða, sem var haldið í Marokkó, eftir 4-1 sigur á Al Ahly í undanúrslitunum.

„Við nutum dvalarinnar í Marokkó. Það var mikið af stuðningsmönnum Real Madrid á leikjunum. Við förum héðan mjög ánægðir."

Real á leiki við Elche, Osasuna og Liverpool á næstu sjö dögum.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner