Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 14. febrúar 2023 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
Calvin Ramsay mögulega frá út tímabilið
Mynd: Getty Images

Skoski bakvörðurinn Calvin Ramsay var keyptur frá Aberdeen síðasta sumar en hefur aðeins komið við sögu í tveimur leikjum með aðalliði Liverpool.


Ramsay er 19 ára gamall hægri bakvörður sem hefur verið að glíma við leiðinleg meiðslavandræði frá flutningnum til Liverpool. Í þau fáu skipti sem hann hefur verið heill heilsu hefur Ramsay litið vel út með varaliðinu og á þar tvö mörk í fimm leikjum.

Ramsay greindist með streitubrot í baki þegar hann kom til Liverpool og virtist vera að jafna sig í lok janúar. Hann skoraði í Evrópukeppni unglingaliða í byrjun febrúar en nú greinir Telegraph frá því að Ramsay er að glíma við ný meiðsli.

Sam Wallace hjá Telegraph greinir frá því að Ramsay verði líklegast frá út tímabilið vegna meiðslanna en tekur ekki fram hvers eðlis þau séu.

Ibrahima Konate, Luis Diaz, Roberto Firmino, Virgil van Dijk og Diogo Jota hafa allir verið að glíma við meiðsli en síðustu þrír voru í hóp gegn Everton í gærkvöldi. 


Athugasemdir
banner
banner
banner