Það vekur athygli að hinn 16 ára gamli Warren Zaïre-Emery er í byrjunarliði PSG sem er þessa stundina að spila gegn Bayern Munchen í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Zaire-Emery er yngsti leikmaðurinn í sögu Meistaradeildarinnar til að byrja leik í útsláttakeppninni.
Sergio Ramos og Lionel Messi eru einnig í liði PSG en þeir léku sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni áður en Zaire-Emery fæddist.
Zaire-Emery fæddist þann 8. mars árið 2006 en þann dag lék Ramos með Real Madrid gegn Arsenal í 16 liða úrslitunum.
2006 - Warren Zaïre-Emery starts alongside Lionel Messi & Sergio Ramos for PSG, who both made their UEFA Champions League debuts before he was born. Indeed, Ramos faced Arsenal for Real Madrid in a round of 16 match on the day Zaïre-Emery was born (March 8th, 2006). Generations. pic.twitter.com/3e1pc0Qixc
— OptaJoe (@OptaJoe) February 14, 2023