Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 14. febrúar 2023 22:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Neymar harðlega gagnrýndur - „Eins og hann hafi verið að djamma í gær"
Mynd: EPA

Neymar var harðlega gagnrýndur hjá Vilhjálmi Frey Hallsyni, Rúrik Gíslasyni og Kára Árnasyni á Viaplay yfir leik PSG og Bayern Munchen í Meistaradeildinni í kvöld.


Hann fann sig engan vegin í leiknum og Rúrik sparaði ekki orðin þegar hann talaði um leikmanninn í hálfleik.

„Ég held að hann sé að jafna sig af einhverri þynnku. Þetta er rosalega skrítið. Kári kom með mjög góðan punkt yfir leiknum: Það er eins og hann sé tekinn og djammaður í framan, eins og hann hafi verið að djamma í gær," sagði Rúrik.

Í leikslok fannst Rúrik ótrúlegt að Neymar hafi klárað leikinn inn á vellinum.

„PSG var með Neymar þrútinn í fararbroddi. Er bannað að skipta honum útaf?" Sagði Rúrik.

„Hann var með brjóstsviða í seinni hálfleik. Speglum þetta, Neymar er í Bayern, væri ekki búið að taka hann útaf?" Spurði Villi.

„Jú allan daginn, þá hefðu þeir kannski eitthvað til að setja inn á," sagði Kári.


Athugasemdir
banner
banner